Um okkur

Baldvin Valtýsson, Eigandi

Baldvin Valtýsson

Eigandi

Baldvin er annar tveggja eigenda Akrar Consult.

Hann hefur 26 ára starfsreynslu á fjármálamörkuðum og víðtæka reynslu af fjárfestingum og lánamálum. Baldvin var yfirmaður á lánasviði í Búnaðarbanka og Landsbanka og í kjölfarið útibússtjóri útibús Landsbankans í London. Hann stýrði endurheimtum á útibúi Landsbankans í London í 3 ár og kom að sölu á umfangsmiklum eignarhlutum í eigu útibúsins.

Viðskiptafræðingur að mennt, með Cand. Oecon. frá Háskóla Íslands og hefur starfað í ýmsum stjórnum heima og erlendis. Var m.a. stjórnarformaður Iceland Foods í Bretlandi og er núverandi stjórnarformaður heildsölunnar Innnes ehf. Baldvin hefur starfað við ráðgjöf og fjárfestingar frá árinu 2011.

Ívar Guðjónsson, Eigandi

Ívar Guðjónsson

Eigandi

Ívar er annar tveggja eigenda Akrar Consult og býr að áratuga reynslu á fjármálamörkuðum sem stjórnandi í fjármálafyrirtækjum, ráðgjafi, fjárfestir og stjórnarmaður.

Hann hefur víðtæka reynslu af ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja og rekstrareininga, samruna og skráningu félaga á markað. Ívar hefur komið að mörgum fjárfestingum í gegnum tíðina, bæði sem fjárfestir og ráðgjafi.

Viðskiptafræðingur að mennt, Cand. Oecon. frá Háskóla Íslands, og lauk MBA-námi við E. J. Ourso College of Business, LSU. Er jafnframt löggiltur verðbréfamiðlari. Ívar var yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka og yfirmaður hlutabréfafjárfestinga hjá Búnaðarbankanum og Landsbankanum, bæði í skráðum og óskráðum bréfum.

Hann hefur setið í stjórnum fjölmargra félaga á Íslandi og erlendis og situr nú í stjórnum EpiEndo Pharmaceuticals og nokkurra eignarhaldsfélaga. Ívar hefur starfað við ráðgjöf og fjárfestingar frá árinu 2010.