Þjónusta

Akrar Consult vinnur fyrir eigendur, stjórnir og fjárfesta í tengslum við kaup, sölu, samruna og fjármögnun fyrirtækja. Hvert verkefni er unnið af eigendum félagsins frá upphafi til enda, í nánu samstarfi við þig og í fullum trúnaði.
Ráðgjöf við sölu fyrirtækja
Sala fyrirtækis er stór ákvörðun og oft einstök í lífi eiganda.
Við vinnum með þér að undirbúningi, skilgreiningu markmiða, vali á tímasetningu, viðræðum og samskiptum við líklega kaupendur þar sem reynsla okkar nýtist viðskiptavinum.
Kaup og samrunar
Fyrir kaupendur og stjórnir sem hyggja á kaup eða samruna önnumst við leit að hentugum félögum.
Við leggjum mat á áhrif viðskiptanna, aðstoðum við mótun tilboðs og leiðum samningagerð. Markmiðið er einfalt; að þú takir upplýsta ákvörðun á réttum forsendum.
Fjármögnun og endurskipulagning
Við veitum stjórnum og eigendum ráðgjöf um fjármagnsskipan og fjármögnunarkosti, hvort sem tilefnið er vöxtur, kynslóðaskipti eða breyttar aðstæður.
Við greinum stöðuna, setjum fram valkosti og veitum ráðgjöf í viðræðum við fjármögnunaraðila. Ráðgjöfin er óháð; við höfum enga hagsmuni af niðurstöðunni aðra en þína.
Stefnumótandi ráðgjöf
Við veitum ráðgjöf fyrir stjórnir og eigendur um stefnumótandi valkosti, hvort sem tilefnið er sala, kaup á félögum, rekstrareiningum eða aðrar hluthafabreytingar.
Ráðgjöfin byggist á viðurkenndum aðferðum, reynslu og þekkingu á markaðsaðstæðum.
Hafa samband: info@akrarconsult.is eða eigendur félagsins