
Við vinnum fyrir þig
Akrar Consult veitir eigendum og stjórnum ráðgjöf við sölu, kaup, samruna og fjármögnun fyrirtækja
Um okkur
Akrar Consult er óháð ráðgjafarfyrirtæki á sviði samruna, yfirtaka og annarra fyrirtækjaviðskipta. Frá 2012 höfum við unnið fyrir eigendur og stjórnir fjölda fyrirtækja. Eigendur félagsins leiða hvert verkefni sjálfir með markmið viðskiptavina að leiðarljósi.
Valin verkefni
Þjónusta
Við vinnum með eigendum og stjórnum að sölu og kaupum fyrirtækja, samrunum, fjármögnun og endurskipulagningu, auk annarra stefnumótandi ákvarðana. Tilefnið getur verið vöxtur, kynslóðaskipti, hluthafabreytingar eða breyttar aðstæður. Ráðgjöfin er óháð; við höfum enga hagsmuni af niðurstöðunni aðra en þína.